Kannski hefðirðu átt að setja spoilerviðvörun en ég efast samt um að þetta komi einhverjum á óvart.
Ég set samt hjá mér.
*SPOILER*
Af hverju hefði þér fundist það betri endir? Mér finnst endirinn eins og hann er miklu áhrifameiri og magnaðri. Raunverulegur sigur hans var ekki svona yfirborðskenndur. Sigur hans fólst ekki í því að drepa Commodus heldur að sameinast konu sinni og barni í Eilífðarríkinu. Það var það sem hann þráði heitast og stefndi að alla myndina.
Það að Commodus hafi dáið gerir dauðann bara enn áhrifameiri. Dauði hans var ekki sigur fyrir Maximus heldur sigur fyrir Róm. Upphaflega átti Maximus ekki einu sinni að deyja. Ég get verið sammála um að það hefði verið stórslys.
Ég lít svona á þetta.