Hvað færir “Fyrstur” umræðunni? Ég er samt aðallega að tala um þegar fólk segir bara “Fyrstur” í upphafi korks, myndar eða greinar bara til að segja það. Ég eyði svoleiðis athugasemdum tafarlaust enda algjör óþarfi og í raun bara pirrandi. Það eru ýmsir hlutir sem fara í taugarnar á mér (t.d. þegar fólk segir “Vá hvað þú ert með ömurlegan kvikmyndasmekk) og svoleiðis athugasemdir fá að fjúka ef ég rekst á þær. Ástæðan fyrir því að ég eyddi ekki athugasemdinni að ofan er að hann sagði þó eitthvað annað en bara ”Fyrstur".