Ég er ekki alveg viss hvort Will Smith er rétti maðurinn fyrir hlutverkið. Og það er ekki af því að hann sé ekki nógu massaður. Sem er reyndar var bull, hann er búinn að bæta á sig 20 kg og víst orðinn mjög massaður. Heldur af því Ali er einn magnaðasti einstaklingur allra tíma. Hann var t.d lykilmaður af því að Svartir Ameríkanar urðu stoltir af uppruna sínu þ.e Afríku. Hann byrjaði t.a.m fyrstur manna að nota African-American. Hann barðist einnig gegn Vietnam stríðinu og var sviptur titlinum út því að hann vildi ekki sinna herskyldu.Fór í fangelsi út af því, hann var(og er enn) mjög orðheppinn og með sterka persónuleikatöfra. Þannig að það eru erfið fótspor sem Will Smith ætlar í. Og hvaða hálvita dettur í hug að ráða bara einhver boxara? Þetta sýnir bersýnilega að sá einstaklingur sem sagði þetta ber ekki mikla virðingu fyrir meistaranum.