Getur einhver sagt mér aaafhverju gaurinn skaut hann í endann? :S Og afhverju reyndi hann að kyssa hann fyrir það? :S Ég er svo engan vegin að fatta þetta! Langt síðan ég sá hana samt, var bara að horfa á hana aftur um daginn og var bara oO.
Já ég veit, en nágranninn var búinn að vera að drulla yfir son sinn því hann var að segja að hann væri samkynhneigður og svo fór hann sjálfur og kyssti gaurinn? Whyyy? Og afhverju að drepa hann líka? :O Það er það sem ég fatta ekki haha. xD
Leikstjóri myndarinnar sagði eitt sinn í viðtali að hann hefði sleppt einu atriði þar sem kom fram að Frankie hafi verið samkynhneigður og hafi átt kærasta í hernum sem dó í stríðinu. Eftir dauða hans neitaði Frankie að viðurkenna samkynhneigð sína og því fór sem fór eins og aðrir hafa bent á.
Algjörlega óþarft atriði sem hefði dregið verulega úr áhrifum endisins, eyðilaggt hann jafnvel. Það er ekki af ástæðulausu að þetta atriði er ekki í myndinni.
Hann reyndi að kyssa hann því hann hélt að Lester væri hommi. Þetta voru örugglega dýpstu, mest leyndu tilfinningar hans sem hann skammaði sín alveg óendanlega fyrir því hann var greinilega haldinn mikilli hommafóbíu.
Svo beilaði Lester á honum og hann örugglega meikaði ekki ef hann myndi segja einhverjum frá eða því um líkt.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..