Í svona rosalega flottum bardagaatriðum þá eru tvær tailenskar myndir sem koma fyrst í huga hjá mér Ong Bak og Tom Yum Goong, muay thai rosakappinn tony jaa er í þeim báðum að fokka upp sultum.
En ég held að þú sért að leita að svona raunsæum götuslagsmálum, þá er eitt besta slagsmála atriði sem ég man eftir í Wheels on Meals með Jackie Chan þar sem hann berst við bandaríska kickboxarann Benny “The Jet”.
Svo er náttúrulega lokabardaginn í Rocky 5 rosalegur.
Og svo eru bardagarnir í Ali myndinni rosalega góðir, og alveg merkilegt hversu vel Will Smith nær töktunum hjá meistaranum, en nú er ég alveg kominn útfyrir það sem þú varst að spyrja um þannig að ég læt þetta gott heita.
It´s impossible to be unhappy in a poncho