Til sölu er 5 ára gamalt hágæða 52" Thomson Scenium sjónvarpstæki.
Um er að ræða svokallað bakvarps (rear projection) tæki sem framkallar ákaflega góða mynd, sér í lagi ef um er að ræða efni af DVD mynddisk.
Tækið er búið 3 SCART tengjum auk tengimöguleika að framan.
Tækið stendur á eigin fæti og er á hjólum.
Mál: 120 (breidd), 120 (hæð), 60 (dýpt)
Tækið ræður ekki við háskerpuefni.
Verð 65.000 kr. eða besta tilboð sem ég fæ næstu tvær vikurnar.
Tækið er staðsett í Hafnarfirði og þarf kaupandi að sjá um flutning.
Upplýsingar gefur Kristinn í síma 8618325 milli 19 og 22 á kvöldin