Dwayne “Klettur” Johnson fer í svipað hlutverk og Vin Diesel gerði í The Pacifier og Arnold Schwarzenegger gerði í Kindergarten Cop, það er þessi massaði gaur sem þarf að sjá um einhver börn, honum til mikils ama. Kletturinn leikur ruðningskappa sem lifir hátt en dag einn kemst hann að því að hann á dóttur! Ekki vissi hann af því fyrr en akkurat núna og þá breytist líf hans svo um munar. Litla vill nefnilega fá tíma með pabba sínum en hann er upptekinn að æfa sig í fótboltanum enda er hann nálægt því að verða meistari.
Gaman að þessu, hvernig er þessi mynd?