Við erum í augnablikinu 3 stjórnendur hér á kvikmyndum, rfm, Liverpool og ég. rfm er staddur erlendis og verður upptekinn næstu mánuðina er skiljanlegt að hann lætur lítið sjá sig hérna inni. Liverpool hefur líka verið mikið upptekinn sem þýðir að nánast því allt efni hér á síðunni hefur farið í gegnum mig. Það vantar því einhvern/einhverja sem væru til í að bætast í hóp stjórnenda á áhugamálinu, einhvern sem hefur verið frekar virkur og hefur helst skrifað grein hingað en það er skilyrði frá nýjum vefstjóra. Þó mega allir sem eru áhugasamir senda inn umsókn og sjá hvað hæstvirtur vefstjóri segir.

http://www.hugi.is/hugi/bigboxes.php?box_type=adminumsokn