Var einhver að sjá þessa mynd í fyrsta sinn? Ég sá hana bara um daginn í fyrsta sinn síðan ég var átta ára eða svipað. Myndin er tæknilega mjög vel gerð og svart/hvíti liturinn á vel við hana en ég veit ekki.. Mér finnst hálfóþægilegt að horfa uppá alla niðurlæginguna sem maðurinn þarf að þola í myndinni, þá sérstaklega þegar hópur fólks heldur “veislu” hjá honum. En síðan verður maður glaður aftur þegar hann er kominn í fín föt og farinn að drekka te.
Endilega að koma með skoðanir á myndinni.. Hvað táknar kirkjan sem hann var að byggja?