Mér er illa við aldurstakmörk. Ég og 4 vinir mínir ætluðum á Stay Alive áðan EN “Skilríki takk”

Fuck, ég hata þannig. Ég hef trúlega séð fleiri hryllingsmyndir en kellingin sem var að selja miðana.

Og þó, í staðinn fórum við á Click. Kom á óvart. Mjög góð (svoldið mikið klám samt) en mjög góð. Hafiði tekið eftir því að allt sem Adam Sandler er í er gull? (flest allt) Og þó að ég hati barnaleikara þá voru þau ekki alveg yfirgangslega pirrandi.

Og eitt að lokum, langar ykkur að sjá Miami Vice?

Mig langar. Colin Farrel er svalur…
Let me in, I’ll bury the pain