Jæja, þá er maður loksins búinn að sjá eina af perlum kvikmyndasögunnar, Dr. Strangelove.
En þá spyr ég, skyldi einhver endinn? Hann stendur upp og…. Hvað? Þannig ég spyr, kæru hugarar, hver er ykkar skoðun á þessum, tja, stórfurðulega endi?
Heimurinn ferst, ég sé ekki hvað annað er hægt að sjá út úr þessu. Þetta er bara verulega súr endir sem gegnir held ég því hlutverki að magna fáránleikann í myndinni og í því felst stærsti hluti ádeilunnar. Stórir strákar með fínu hnappana sína að leika sér með heiminn.
Kannski meira svona, hvað hann átti að meina…Það hefði alveg eins verið hægt að stoppa hann bara af í miðri setningu með kjarnorkusprengingum, en hann var látinn standa upp, kannski enginn merking, kannski bara toppurinn á ruglinu eins og spalinn sagði.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..