Avi Arad hefur staðfest að það verða 4 óvinir í Spiderman 3 meðal þeirra eru Venom, Sandman, og Green Goblin sá fjórði verður kannski sýndur á Comic Con.
Það hefur verið sagt að tveir alvöru óvinir verði og tveir auka. Venom: Eitthverstaðar heyrði ég að það muni taka alla myndina að skapa hann og að lokum komi hann bara í síðasta bardagann. Svo á að vera huxanlegt að hann lifi af og snúi aftur í fjórðu myndinni. Sandman: Nokkurskonar aðalvondi kall. Spiderman á víst að berjast við hann fjórum sinnum í myndinni eða eitthvað þannig. Green Goblin: Norman Osborn mun ekki vera endurvakinn. Líklegast er að Harry munu setja á sig búninginn. Peter mun hinsvegar ekki vilja drepa Harry og því verður þetta mun dýpri og öðruvísi barátta, þess vegna flokkast hann ekki undir “hina eiginlegu vondu kalla” í SM3. ???: Ekki er nú vitað neitt um þennann en Það gæti vel verið The Lizard. The Lizard er annað form einhenda kennarans hans Peters Curt Connors sem sást smávegis í Spider-Man 2 “Brilliant but lazy”. Þetta er mín kenning.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..