Ég er að fara í munnlegt próf úr big fish á morgun og ég get bara ekki fengið sjálfa mig til að horfa á þessa mynd.(hún er leiðinleg)
Þannig að gætu einhverjir sem hafa séð hana hjálpa mér?
Spurning sem ég þarf svar við er Hvaða munur er á sögu Edwards og Spectre eins og hann sagði það og sögu Jennifer Hill um hvað Edward gerði fyrir Spectre?
vá, þetta er mynd, ekki bók, og þú þarft að taka munnlet próf úr mynd, vá og þú-þú nennir ekki að horfa á hana, tekur tvo tíma, tvo tíma af mánudagskvöldinu þínu…
Ég er latur þegar kemur að heimavinnu en að nenna ekki að horfa á bíómynd:S Sama hversu leiðinlegar eða lélegar þær eru þá get ég alltaf horft á bíómynd. En jæja, fólk er ekki eins gert.
“There's no such thing as stupid questions, just stupid people.”
Ég ætti kannski að taka það fram að ég hef séð myndina!.. Ég þarf bara að pæla geðveikt í henni(þið ættuð að sjá spurningarnar sem ég fékk heim)
Málið er ekki að ég sé að reyna að svindla mér frá því að læra.
Þetta er bara ömurleg mynd sem ég skil ekkert í. Okei pabbinn segir fantasy sögur og sonur hans er í fílu út af því síðan er kallinn að deyja og þá vill sonurinn vita hver sanna útgáfan er.
Ég veit allt þetta! Ég vissi bara ekki þetta eina sem ég var að spyrja að.
(afsakið ef þetta hljómar ásakanlega… Ég er bara verulega pirruð útaf þessu og ýmsu öðru)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..