Takk fyrir það.
Við erum búin að hafa sama útlitið núna í heilt ár. Ég var orðinn leiður á að hafa gamla kubba sem við notum ekkert sem taka bara pláss og uppsetningin var allt of mikið þannig að allt var hægra megin og svo langi tenglakubburinn vinstra megin. Mig langar helst bara að henda tenglunum út… en það virðast einhverjir nota þá. Núna reyni ég að hafa efnið sem við notum á minna svæði bæði hægra og vinstra megin. Lengi hefur okkur vantað trailera en við erum komin með RSS straum frá Topp5.is bæði á fréttir og trailera og ég vona að það fríski áhugamálið.
Ég mun skrifa grein um þetta og ýmislegt annað sem ég kýs að kalla vorhreingerningar innan skamms.