6,6 stjörnur á imdb.com þrátt fyrir allt fuzzið og lætin. Ég held að hún verði geymd þar til á vídeó.
Ég skoðaði líka statistikina og hún var mjög óeðlileg, 30% sem gefa henni 10 stjörnur, 16% gefa henni 1 stjörnu og restin 5 eða 6 stjörnur.
Vigtaða meðaltal imdb sem hannað er til að koma í veg fyrir “vote stuffing” síjar út mest af þessum tíum og ásum og eftir stendur 6,6.
Hljómar svolítið eins og myndin sé af sama gæðaflokki og Cabin Fever (sem var vægast sagt léleg) og að Tarantino hafi aðallega verið að gera félaga sínum greiða með því að skrá sig sem framleyðanda því myndin er á toppi aðsóknarlistans vestanhafs þessa helgina.
Vídeó í vondu veðri, vonandi kemur myndin mér samt á óvart.
massi