Algengast um 4-5 VIRKA daga eftir að það fer í póst (sem getur aftur tekið einn til tvo daga eftir að þú pantar). Þetta getur tekið allt að tvær til þrjár vikur í einstaka tilfellum.
Ef þetta skilar sér ekki (komið fyrir tvívegis hjá mér í alls 78 sendingum) þá lætur maður þá bara vita og þeir senda annað eintak í hvelli.
Finnst mönnum ekki óþolandi að borga 350 fyrir hverja sendingu? PLay sendir allt í stykkjatali þannig að í staðinn fyrir að fá 10 DVD í einum kassa færðu 10 myndir í stykkjatali. það þýðir 3500 kr. í staðinn fyrir 350. það munar um minna… …og þetta er óþolandi
Hafðu bara samband við tolldeildina hjá póstinum og segðu þeim hvernig sending þetta er og athugaðu hvort þeir eru ekki til í að tolla þetta allt saman. Ef þetta kemur á svipuðum tíma þá á það ekki að vera neitt mál.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..