Coyote Ugly ekki slæm
Ég og vinur minn skelltum okkur á Coyote Ugly um daginn og bjuggumst við nokkrum stelpum að dilla rassi alla myndina. En við áttum eftir að sjá að svo væri alls ekki. Jú auðvitað voru 5 FLOTTAR gellur dansandi á bar og sörverandi drykki og læti en þess á milli var þræl góður söguþráður. Og gamli gaurinn hann John Goodman var mættur á tjaldið sprækari en nokkru sinni fyrr. Náunginn brilleraði á tjaldinu. Ég mæli vel með að þú sem ert að lesa þetta farir á þessa mynd.