Fór á hana í gær(sunnudag) og ég verð nú bara að segja að þetta er slappasta hrollvekja ef má kalla hana það, fannst hún allt of… Tjah, bara hreint út sagt boring, söguþráðurinn orðinn eins og gömul lumma háskólakrakkar villast og bla bla, mér finnst þessi sögu þráður bara útbrunninn.
En ég verð að gefa myndinni + fyrir handritið eða að detta þetta umhverfi í hug allir sem hafa komið á vaxmyndasafn vita að það er nokkuð spooky þar, þannig skapast alveg sæmilega spooky umhverfi í myndinni.
En mér prívat og persónulega fannst myndin í heildina mjög slöpp, dæmi hver fyrir sig.