Ég skal reyna að svara þessu, út frá þessum eina þætti sem ég hef séð. Hann snerist mest út á algjörlega ekki neitt. Myndavélin stóð á sama stað, myndaði íbúð. Í íbúðinni voru nokkrar manneskjur með kanínugrímur. Þær bara voru þarna og “töluðu saman” - meira sögðu setningar sem voru alls ekki í samræmi við það sem áður var sagt. Svona var að minnsta kosti mín upplifun…