Fór á Saw í regnboganum og var ekki sáttur við þetta bíó. Númer 1 myndin byrjaði 20 mín eftir auglýstan byrjunartíma og þá er ég ekki að tala um trailera í 20 mín heldur auðan skjá og ljósin kveikt.
Svo þegar það voru svona 30 sek eftir af myndinni þá slökktist á skjánum. Við sátum bara og biðum eftir að hún myndi halda áfram en nei þá kveikja þeir ljósin og eru það “elskulegir” að leyfa okkur að heyra restina af myndinni. Þið sem hafið séð myndina getið ímyndað ykkur að það væri bömmer að sjá ekki endinn alveg. Þá stakk einn gestur uppá því að reyna að fá endurgreitt en þessu fyrirtæki vilja náttúrulega alls ekki tapa pening en við fengum boðsmiða, smá sárabót. Samt frekar fúlt