Þetta er með betri myndum sem að komið hafa í þessum flokki mynda seinustu 5 árin. Sitt sýnist hverjum vissulega. Hann David karlinn Lynch höfðar engann veginn til allra, það sást best á framtakinu hans um stóðlífið í Twin Peaks, það entust fáir til að uppgötva þetta listaverk vafið kímnigáfu, snilldarlegri persónusköpun, yndislegri tónlist. Þetta er það sem að Lynch hringsnýst um og er Lost Highway enginn eftirbátur þar. Hryllingurinn þegar karlpungurinn er með honum í rúminu í staðinn fyrir eiginkonuna, eða þegar hann tilkynnir hinum það að hann sé staddur heima hjá honum. En ef að maður ætti að tala um minniháttar Lynch feila þá myndi það vera myndin Crash.