Sambíóin og Háskólabíó lækkuðu í dag verð á bíómiðum úr 800kr niður í 750 kr eða um 6,25%. Segja þeir ástæðuna vera lækkun dollarans en ég veit ekkert um hvort að þetta sé út af bíóverkfallinu eða ekki.
Allavega eru þetta mjög góðar fréttir og gæti hafið verðstríð milli kvikmyndahúsanna og ég hvet alla að fara frekar í Sambíóin eða Háskólabíó á meðan að þeir eru með lægsta verðið svo að hinir lækki líka.