palli46is, það er mjög greinilegt að þú og sá sem byrjaði þennan kork skilji hvorki upp né niður í þessari mynd né hvernig hún er skrifuð. Þið hafið greinilega haldið að þetta ætti að vera einhver svaka hryllingsmynd sem ætti að hræða ykkur upp úr sokkunum. Þið hlæjið að allri vitleysunni og finnst hún bara hræðilega léleg og leiðinleg af því að hún sé bara ekkert að væta á ykkur brækurnar.
Málið er, þetta er splattermynd, sú týpa af splattermynd sem ekki á að taka alvarlega (reyndar eru þær flestar þannig). Ofbeldið er svo over the top og húmorískt að þú ÁTT að hlæja að öllu saman, þetta er grínmynd, ekki hryllingsmynd og Bad Taste er alveg gjörsamleg cult-classic sem er feiknavel gerð og alveg drepfyndin, hver einasta mínúta myndarinnar.
Ekki halda að þetta sé eitthvað rusl, það þarf mjög gott og fjörugt ímyndunarafl til þess að skrifa svona og það er mjög auðvelt að klúðra efniviðinum og bröndurunum ef þetta er ekki rétt gert. Þessi mynd er hinsvegar einkar vel heppnuð og eiga Jackson og hans vinir mikið hrós skilið fyrir.
Þannig í guðana bænum ekki tala svona um Bad Taste og korkahöfundur, lærðu nú í það minnsta að skrifa nafn myndarinnar rétt, Bad Tast<b>E</b> en ekki Bad <b>Tast</b>!