Sælir
Ég hef ekki mikið vit á þessum DVD málum og þess vegna gæti þessi spurning verið nokkuð vitlaus vegna vanþekkingar.

Þannig er að ég er með DVD disk sem ég nota í tölvunni. Þessi diskur var keyptur í gegnum Amazon og átti að virka fyrir öll svæði. Ég er með nokkuð gamlan Sony spilara sem spilar þennan disk í svart hvítu. Ég hef prófað þennan DVD disk í nýrri Sony spilara og þá spilast hann eins og hann á að gera.

Nú vill ég beina þessari spurningu til þeirra sem eru klárir í tækninni og að redda hlutunum.
Er nokkur leið að koma efninu af þessum DVD diski yfir á video spólu?
Mitt hjól: Jamis Dakar