Ég á AIWA XD-DV370 og fékk hann í Radíóbæ. Þessi spilari var mjög ódýr miðað við fítusana í honum (29.999kr). Hann er gefinn upp fyrir alla diskana sem þú nefndir (veit samt ekki um JPEG).
Hann hefur spilað öll kerfi sem ég hef reynt (R1, R2 og R3) án nokkura vandræða og hann fer létt með RCE kódaða diska, CD, CD-R og CD-RW.
Ég gáði á fjarstýringuna mína og þar er takki merktur SURROUND (vá, ég vissi það ekki!!).
Minn AIWA er með Scart útgangi, S-video útgangi og optical útgangi.
Þeir hjá Radíóbæ eru núna að auglýsa AIWA XD-DV600 og væri ég að kaupa spilara núna myndi ég tékka á honum.
Allavegana hef ég ekki lent í neinum vandræðum með minn spilara og þegar mig langar í annan þá lít ég við hjá þeim :)
(p.s. Ég er EKKI að vinna í Radíóbæ :O)
___________________________________________________