Tucker (Alan Tudyk) og Dale (Tyler Labine) eru tveir meinlausir sveitalúðar sem eru alveg hræðilegir í mannlegum samskiptum. Þegar þeir rekast á hressa borgabúa sem ætla sér góða stundir í sveitinni, svo stoppa borgarbúarnir á næstu bensínstöð og fá sér bjór og bensín o.s.frm. Sveitalúðarnir stoppa líka á sömu stoppustöð og fá sér einhvað, borgarbúarnir eru fljót að dæma Tucker og Dale en þeir vilja bara vera eins vingjarnlegir og þeir geta boðið uppá en það er bara ekki nóg fyrir borgarbúana. Svo loks ná borgarbúarnir á lokastað og gera allt ready svo kemur smá slys og einn af borgarbúunum lendir í slysi og Dale og Tucker koma og bjarga henni svo byrja vandræðin því borgarbúarnir taka það fram að Dale og Tucker hafi rænt henni og ætli henni til alls. Svo loks taka þeir til sinna ráða og ætla að gera allt sem þeir geta til að skaða Tucker og Dale sem mest og ná stelpunni heilir á húfi.
Þessi mynd virkar svaklega mikið og er mjög blóðug og skemmtileg. Þegar maður er að horfa á hana þá sér maður fullt af blóði og er í hláturskasti yfir hversu gott þetta er. Handritið er svakalega gott og virkar mjög vel. Samræðurnar eru góðar og ekki kjánalegar eins og í mörgum myndum svo verður líka allt þar á milli gott. Það liggur ekki langur tími til að það kemur eitthvað fyrndið næst svo þegar eitthvað fyndið er búið þá kemur annað og annað. “The perfect love story… with a high body count…” þessi setning gerist ekki meira sönn en hún er, því að hún meikar svo mikinn sens.
Leikararnir eru allir góðir að mestu leyti. Það koma einn og einn sem eru einum of ýktir en ef maður horfir fyrir utan það þá er TDE alveg frábær skemmtun og spennandi, þar að auki er hún rosa lega góð mynd, það er ekki alltaf þegar maður getur sagt “Þessi mynd er virkilega góð mynd” ekki merguð, ekki slæm, ekki leiðinleg, ekkert meistaraverk heldur góð mynd og verður það. TDE er ein af þessum myndum sem maður getur horft aftur og aftur á og haft jafn gamann og maður geriði við fyrstu sinn.
Einkunn: 8/10 - Hressilega góð og framúr skarandi kvikmynd sem er með mjög góðum húmor og vill til að maður vilji ekki að hún hætti en samt er hún ekkert meistaraverk… Horfðu á hana….
Everything is joke if you take it as joke