Surf Nazis Must Die Ég og frændi minn horfum oft á b myndir og ákváðum að fara á imdb og leita að einhverri með fyndnum en allvarlegum titli og coveri. Við rákumst á Surf Nazis Must Die.

Surf Nazis Must Die gerist í framtíðinni eftir að jarðskjálftar hafa eyðilagt strendur Los Angeles og nasistar hafa tekið yfir þeim. Eftir að svartur maður sem er að vinna þarna rétt hjá einni strönd er drepinn af nasistunum kemur amma hanns og hefnir hanns.

Ég gat ekki skrifað mikið um þessa mynd enda ekki mikill söguþráður í henni. Ein langdregnasta mynd sem ég hef séð. Action ekki fyrr en í endann á henni. Þetta er allavega lélegasta mynd sem ég hef einhvurntímann horft á. Það var ekkert gott við þessa mynd. Ég ráðlegg þeim sem ætla að reyna að sofna yfir mynd þá eigi þeir að leigja þessa mynd.

Ég gef þessari mynd 4 ræpur (-****) af 4 ræpum