Ég fór á þessa mynd í gær(fimmtudag) og átti von á miklu og ég get sagt að hún stóðst væntingar mínar að fullu. Því hef ég ákveðið að skrifa grein um hana og hún hljóðar svo.
Þessi mynd var gefin út árið 2001 og var Leikstýrt af Steven Soderbergh. Í henni léku George Clooney(Perfect Storm),Brad Pitt(The Mexican),Matt Damon(Rounders), Julia Roberts(My Best Friends Wedding),Andy Garcia(Steal Big Steal Little), Casey Affleck(Committed), Don Cheadle(Swordfish),Scott Caan(American Outlaws),Mark Gantt,Elliot Gould(The Silent Partner), Topher Grace, Edward Jemison, David Jensen.
Þessi mynd fjallar um tvo menn Danny Ocean(Georg Clooney) og Rusty Ryan(Brad Pitt)sem ætla að ræna þrjú spilavíti í einu sem eru öll í eigu Terri Benidict(Andy Garcia) sem er milljónamæringur og ere með fyrrverandi konu Danny´s. Þannig að þeir reyna að finna mann sem á nóg af peningum og hefur engu að tapa og hefur eitthvað á móti Benidict.Þannig að þeir tveir hafa uppi á manni að nafni Reuben Tishkoff og hann segir þeim að það sé fásinna að reyna að ræna spila víti en um leið og þeir nefna að Terri eigi spilavítin
kippist hann við og býðst að gefa þeim allan þann pening sem þeir þurfa. Hann segir þeim líka að þeir geti ekki gert þetta einir og að þeir þurfi að vera að minnsta kosti ellefu.Þá hefst leitin af gömlu félögunum. Þeir fá til liðs við Linus Caldwell(Matt Damon),
Soul Bloom(Carl Reiner),Turk Malloy(Scott Caan),Virgil Malloy(Casey Afleck), Frank Cattone(Bernie Mac), Yen Mu Shuu(Shaobo Qin), Livingston Dell(Edward Jemison) og Basher Tarr(Don Cheadle) og bjóða þeim heim til Reuben´s.Og segja þeim að það sem þeir ætla
að gera er mjög hættuleg, og þeir mættu annað hvort taka þátt í því og fara inn eða verða eftir. Allir fara inn nema Linus Caldwell sem er svolítið taugaóstyrkur því hann hefur aldrei tekið þátt í neinu svona stórráni en þá kemur Reuben til hans og segir honum að drullast inn í húsið. Nú þegar þeir eru komin með fulla áhöfn og geta þá byrjað á undirbúningi ránsins. Þeir kanna ávana eigandans og skoða spilavítið. Loks kemur að stóra deginum og þegar Lennox Lewis er að berjast og dregur flestalla gesti spilavítisins á hann. En þeir ná að gabba Terri Benidict og setja
á svið annað rán. Og komast undan með peninganna. En Danny Ocean
næst fyrir brot á skilorði og situr inni í sex til þrjá mánuði.
En í endann vorkenndi ég Terri Benidict út af því að hann hafði misst 150 milljónir dollara og hafði misst kærustu sína.
Mér fannst þetta vera ein skemmtilegasta mynd sem ég hef séð.
Frábærlega leikið hjá George Clooney og Andy Garcia og öllum öðrum
leikurunum.Ég gef henni ***+/****.