Í þessari viku verður ný og bætt útgáfa af Exorcist sýnd í bíóum í Bandaríkjunum. Búið er laga hljóðið og bæta CG tæknibrellum við. Einnig er búið að bæta við senum sem voru ekki í upprunalegu útgáfunni 1973. Það er sagt að þessi útgáfa sé alveg rosaleg. Að minnsta kosti get ég ekki beðið því Exorcist er ein besta hryllingsmynd sem ég hef séð. Hvet alla til að sjá hana í bíó þegar hún kemur hingað.