Aardman Animation hafa sett hlé á gerð kvikmyndarinnar, Tortoise vs. Hare. Þeir ráku helminginn af þeim 170 manns sem unnu þar og ætla að bíða í 6 mánuði. Talsmaður Aardman Animation sagði að þeir höfðu svo háa staðla að þeir vildu ekki byrja að taka upp myndina fyrr en að handritið verði fullgert.

Michael Caine á að tala inná hérann en ekki er víst hvort hann geti það ef að það verður 6 mánaða frestur á tökum hennar.

Fyrir þá sem vita það ekki þá er Aardman Animation fyrirtækið sem gerði Wallace and Gromit og Chicken Run. Og Tortoise vs. Hare á að verða öll gerð úr leir eins og fyrri myndirnar.