Jæja, skv. fréttamiðlinum alltaf.is er nú í bígerð bíómynd sem byggist á tölvuleiknum Final Fantasy. Þeir sem hafa spilað síðustu tvo leikina í þessari seríu muna sjálfsagt eftir flottum myndböndum sem komu fyrir af og til í leiknum og verður því spennandi að sjá hvernig þeim tiltekst.
Það þarf að minnsta kosti ekki að kvíða yfir lélegum söguþræði í þessari mynd, þar sem hann var meiriháttar í þeim FF- leikjum sem ég hef spilað.