Það er snilld að vera með svona heimamyndavél og búa til mynd. Einu sinni bjuggum ég og tveir vinir mínir til mynd þar sem ég var með svona djöflagrímu og stóran eldhúshníf að elta þá, það var mjög gaman. Einn var fórnarlambið og hinn var löggukallinn. Svo “lék” ég líka einu sinni raðmorðingja sem skildi alltaf eftir rauða vatnsblöðru hjá fórnarlömbunum :D það var snilld oooh ég vona að þetta sé enn til einhversstaðar á spólu. Ég var að sýna ótvíræða leiklistarhæfileika!