Ég byrjaði að nota Ulead Videostudio, það er forrit sem gerir þér mögulegt að framkvæma flest það sem stóru forritin gera, en er á sama tíma mjög notendavænt. Þú getur náð í Trial version á www.ulead.com en að kaupa forritið eftir mánaðar reynslutíma kostar 70-90 dollara eftir útgáfu. Ég hef fært mig yfir í Vegas núna en hvet byrjendur enn til að nota Videostudio vegna þess að það er svo miklu einfaldara að læra á það. Svo er ekki nokkuð mál að færa myndir yfir á dvd, sem er stór plús.