Það eru nokkrar fínar hugmyndir þarna. Sérstaklega fannst mér fyndið þegar þeir eru að ganga frá skónum sínum. Það er afar truflandi hvernig noisið í hljóðinu dettur niður í nærri hvert sinn sem klippt er og myndin er helst til langdregin, ég var búinn að missa áhugann á því sem var að gerast um það leyti sem svuntugaurinn birtist. Það mætti klippa aðeins úr og reyna að þétta þetta.
Já og varðandi upphafið, þá er „ævi“ með v-i og „Kvikmyndaframleiðandi“ er eitt orð. Bara svona for next time! :-P