Ég var að spá hvort þú hefðir gert þér grein fyrir kostnaðinum sem fylgir 16mm filmunni.
t.d kosta 10 mínútna spóla eða reel a.m.k 15.000 kr með framköllunun og sendingu, og þá á eftir að flytja hana yfir á tölvutækt form og ef gert er ráð fyrir að þú ætlir að gera 10 mínútna stuttmynd, þarsem filmu notkunin er í lágmarki, eða í hlutföllunum 3:1 má gera ráð fyrir að kostnaðurinn verði í kringum 50.000 svo þegar á heildina er litið þá ætla ég að halda mig við HD 1080i 8-bit og reyna frekar að færa mig út í 10-bita vélarnar með tímanum.