Ég veit að þetta var bara prófun, en atriðið var mjög dauft. Ég meina það var mjög aumt að heyra í stefnuljósinu… :) Reynið að gera atriðið dýpra og áþreifanlegra fyrir lokaútgáfuna, t.d. að ef þetta á að verða svona high-speed getaway, láta áhorfandann finna fyrir hraðanum, bæta við sjónarhornum, láta þá sem eru í bílnum t.d. vera að öskra á hvorn annann í stressi, eða þá að hafa einn gaur sem er sallarrólegur og hinn/hinir brjálað stressaðir, eða bara koma af einhverjum samræðum í bílnum til að byggja upp spennu og gera atriðið áþreifanlegra. Þannig myndi ég allavega gera þetta.
…En hvað veit ég, kannski ætluðuð þið að hafa atriðið svona dauft því þetta er bara prófun.