Míníprójekt sem ég er að dútla við þessa dagana, aðallega sem kennslutól fyrir sjálfan mig.
Konseptið eru örmyndir um eitthvað afmarkað konsept hverju sinni, helst ekki mikið lengra en 3 mínútur þó ég setji sjálfum mér enginákveðin tímamörk.
Það er mjög þægilegt að geta unnið stuttmyndir til eigin þjálfunar án þess að þurfa að pæla grimmt í strúktúr eða línulegum narratíf. Bara einföld skotauppröðun hönnuð til að vekja upp einhverja tilfinningu hjá áhorfanda en á sama tíma þjálfa sjálfan mig í að vinna við mismunandi aðstæður.
Allavegana þá eru komnar 2 myndir hingað til:
Autumn
Myndin er rúmlega 2 mínútur og um 22mb
Street
Myndin er um 2 og 1/2 mínúta og rétt yfir 30mb
Þetta eru ekki prójekt sem ætluð eru til að vera eitthvað merkileg eða stórtæk, en kannski hafa einhverjir gaman að.
Myndirnar voru báðar skotnar á Panasonic DVX100AE vél og klipptar og eftirunnar á Sony Vegas 6.0.