Karl Malone fæddist árið 1963, 24 Júlí. Hann leit sitt fyrsta dagsins ljós í Summerfield í Lousiana. Hann fór í Indiana Tech skólan og varð fljótt þekktur sem hinn ótrúlega grófi leikmaður.
Það viðurnefni fékk hann þegar hann olnbogaði mann að nafni Dave Ramer í körfuboltaleik, Ramer skaddaðist mikið á andliti og þurfti að fara í lýtaaðgerð og spilaði körfubolta aldrei aftur.
Þegar Malone var valinn til Utah Jazz var hann enn þekktur fyrir hin sömu brögð, fyrsta árið töldu 50% leikmanna hann spila heiðarlega og um 10% mjög óheiðarlega, þessi 10% áttu eftir að stækka því að eftir nokkur mjög gróf brot gat enginn verið á annari skoðun en þeirri að Malone var grófasti leikmaður deildarinnar. Einnig sögðu margir leikmenn að Malone og Stockton voru bestu leikarar deildarinnar, Malone hafði komið slæmu orði á Utah Jazz. Utah Jazz átti í vandræðum vegna leikaðferða sinna. Margir töldu að þeir náðu að komast áfram á svindli, brotum og leikaraskap, dómararnir voru á öðru máli og fékk Malone sjaldan villu á sig þegar hann gerði sín grófustu verk. Utah misstu nokkra aðdáendur sem voru á móti leik þeirra og hatursklúbbar voru stofnaðir. Dómararnir elskuðu Malone samt ennþá og dæmi um hvað hann komst upp með er þegar Malone “feikaði” bort á sér þegar PG að stærðinni 1.82 hljóp í hann, Malone þeyttist 2 metra upp í stúku, sumum fannst þetta skrýtið öðrum fannst þetta vera fyndið :) Samt má ekki gleyma því að Malone er skemmtilegur leikmaður, hann hefur staðið af sér þetta gríðarlega hatur á honum og á hann marga aðdáendur, hann er góður með boltann og getur skapað sér færi þótt að það hafi verið John Stockton sem oftast gerði það fyrir hann :D og margir segja að hann olnbogar sér að körfunni en kannski er ekki auðvelt að vera svona stór og komast í gegnum heila vörn :D
Meiðslin eftir Malone: Dave Ramer þurfti að fara í lýtaaðgerð eftir rimmu sína við Malone og spilaði aldrei aftur. Steve Nash missti næstum tönn eftir olnbogaskot Malones. Lewis Loyd þurfti sauma. Isaiah Thomas þurfti 40 sauma. Rif á Donyell Marshall brotnaði. David Robinsson rotaðist og fékk heilahristing. Joe Kleine fór í lýtaaðgerð. Shawn Bradley lá á vellinum eftir hnéspark í magan frá Malone.
Afrek: Valinn í topp 50 í sögu NBA árið 1996, Tvisvar sinnum MVP árin 96-97 og 98-99, Valinn MVP með John Stockton árið 1993 í
All-Star leik, yfir tíðina hefur hann skorað um 36.928 stig, keppti á Ólympíuleikunum árin 92 og 96 með John Stockton, á metið yfir að skora vítaköst eða 9.619 stig öðru sæti yfir að skora innan teigar.
Kannski hefði Malone frekar átt að fara í amerískan fótbolta en samt var hann góður körfubolta maður og hann og Stockton voru hið fullkomna tvíeyki á sínum tíma. Malone var mikill keppnismaður og gerir allt fyrir sigurinn, hefur sýnt það og sannað að hann getur spilað án þess að brjóta mikið á fólki. Margir voru kannski hræddir við hann en margir báru líka mikla virðingu fyrir þessum leikmanni.
Snoothe
Snoother