Jæja nú eru Grindvíkingar loksins orðnir biikarmeistarar í meistaraflokki karla.
Til hamingju með það.
Leikurinn fór 93-78 og Jeremiah Johnson hjá Grindavík var með 26 stig. AJ Moye var stigahæstur hjá Keflvíkingum með 20 stig.
ÍS urðu líka bikarmeistarar í dag í kvennaflokki. Þær unnu Grindvíkinga með 88 stigum gegn 73. Maria Conlon var stigahæst í liði ÍS með 25 stig, Signý Hermannsdóttir kom svo næst með 23 stig. Hjá Grindavík skoraði Jerica Watson 26 stig og Hildur Sigurðardóttir 19.
Ég er nokkuð sáttur með úrslitin, hef aldrei haldið neitt með Keflavík og var þess vegna sáttur að Grindavík vann :)
Hélt líka með ÍS í kvennaleiknum.