Ég held að ég hafi sett villumet í unofficial leik í körfu áðan.
Ég var með 13 villur, hvað má vera með margar villur???
Reyndar var ég bara með þar sem það voru of fáir annars.
Ég átti eina 2 stiga körfu, 13 villur, nokkur skref og það var hlaupið á mig og dæmt á andstæðinginn ruðningur.
Þetta var hinn stórmerkilegi leikur Varmaland 8.bekkur - Kleppjárnsreykir 8.bekkur, á Varmalandi.
Leikurinn endaði með tapi fyrir Varmalandi en so be it.