“Einn af leikmönnum Njarðvíkur, Páll Kristinsson, hefur ákveðið að ganga til liðs við lið Grindavíkur á næsta tímabili. Páll segist vilja prufa að spila annarstaðar og reyna að finna þann neista sem honum hefur gengið illa að finna undanfarin tvö ár að eigin sögn og jafnframt segist hann vonast til að eiga afturkvæmt í lið njarðvíkur að ári. Sumir hafa viljað meina að Páll sé að hugsa sér til hreyfings vegna óánægju með þjálfara og umgjörð í Njarðvík en hann segir það vera alrangt og hafi ekkert með ákvörðun sína að gera.”
Skv. Heimasíðu umfn