Ég mundi ekki taka Artest sérstaklega fyrir, það er ósanngjarnt. Þessir menn eru því miður margir hverjir fucked up. Maður sér alveg mannamun á sumum í þessu myndbandi. Maður að nokkrir leikmenn t.d. Rip Hamilton stóð bara á vellinum og átti ekki til orð, eins og margir í höllinni. En rugludallar eins og Artest, báðir Wallace, Stephen Jackson, O'Neill virtust vera að leita eftir veseni og að ég tali ekki um suma áhorfendurna. Það á að refsa þeim öllum sem koma að málinu. Leikmönnunum fyrir að fara í stúkuna, áhorfendum fyrir að fara inn á völlinn og henda hlutum í leikmenn. Pistons liðinu fyrir að láta svona hluti gerast. Svo ætti að kæra Jackson, Oneill og Artest fyrir líkamsárás. Það er enginn spurning.
Hvernig geta svona hlutir gerst? Hvar var öryggisgæslan hjá Pistons, sérstaklega í svona leik, baráttan um Austrið og mikið hatur þarna á milli. Á öðrum völlum, t.d. Staples er öryggisgæslan ótrúlega massív en í Detroit virtist ekki vera einn kjaftur í öryggisgæslu.
Hvern fjandann var Wallace að ráðast á Artest fyrir? Leikbrotið sem Artest framdi var ekkert svo gróft. Wallace var bara fúll yfir að vera að skíttapa.