Launamálin í NBA eru mjög flókin og fremur kjánaleg. Þess vegna geta útbrunnir menn eins og Damon Stoudamire og Shawn Kemp fengið svona rosaleg laun. Ef einhver leikmaður gerir langan samning við eitthvað lið þá mun launin hans hækka með árunum, það eru reglar sem segja til um hvernig laun leikmanna hækka. Í tilviki Shawn Kemp er þetta bara fáranlegt því hann semur við Portland og vegna reynslu hans sem NBA leikmanns urðu Portland að gefa honum háan samning. Síðan segja þeir Kemp upp fyrir síðasta tímabil, EN Portland verður að standa við samningin og Kemp fær há laun út þetta tímabil.