Jordan vill setja á laggirnar NBA-lið í Charlotte
Michael Jordan er sagður vera í viðræðum við Robert Johnson sem hefur áhuga á að setja á laggirnar NBA-lið á ný í borginni Charlotte. Jordan keypti á sínum tíma hlut í Washington Wizards en seldi sinn hlut þegar hann hóf að leika með liðinu. Jordan lék með háskólaliði Norður-Karólínu sem er skammt frá Charlotte og samkvæmt heimildum AP-fréttastofunnar vill Jordan taka þátt í að byggja upp nýtt lið í NBA-deildinni.
eg tok þetta af mbl.is