Hann er kannski aðeins ofmetinn, en það breytir því ekki að hann er samt ógeðslega góður og einn af 4-5 bestu leikmönnum NBA í dag. Skoraði 55 stig, 9-13 í 3 stiga, gegn Jordan í nótt. Það er ansi erfitt að ofmeta það. En ef einhver er að ofmeta Kobe, þá er sá sami maður að segja að hann sé besti leikmaður frá upphafi, sem hann er auðvitað ekki. Mér finnst hann nokkuð ofmetinn af mörgum, en hann er samt einn sá besti ásamt Duncan, T-Mac, Garnett og Shaq þegar hann er heill.