KR-ingar sækja Breiðablik heim annað kvöld í Intersportdeild karla, leikurinn fer fram í Smáranum og hefst kl.19:15. KR-ingar sigruðu fyrri viðureign liðanna með 18 stiga mun.
Liðin mættust fimmtudaginn 5.desember 2002 í DHL-höllinni, það var jafnræði á með liðinum til að byrja með en staðan í hálfleik var 46-39 fyrir KR. Í seinni hálfleik stungu heimamenn af og sigruðu 99-81. Darrell Flake var stigahæstur KR-inga með 36 stig en næstur honum var Magni Hafsteinsson með 17. Hjá Blikum var það Pálmi Sigurgeirsson með 26 stig, þar af fimm þriggja stiga körfur.
<br><br>=======================latex======================