
Jordan skoraði aðeins fjögur stig í seinni hálfleik vegna þess að hann var með sýkingu sem gerði honum erfiðara fyrir en venjulega. Þegar það leit út fyrir að Washington væru að missa leikinn niður þegar um tvær mínútur voru eftir tók meistarinn sjálfur af skarið og skoraði úr tveimur vítaskotum og þegar 15 sekúndur voru eftir og Ron Mercer var að reyna að setja boltann ofan í með layupi þá greip Jordan boltann með báðum höndum og tryggði Washington þar með sigurinn á sínum gömlu félögum.
Þegar Jordan skoraði 30.000 stigið var leikurinn stoppaður í 30 sekúndur og áhorfendur stóðu upp og fögnuðu honum !!!!