Engin óttamerki á Cuper
Þjálfari Inter Milan, Hector Cuper, er kokhraustur þessa dagana, og gaf nýverið frá sér yfirlýsingu þess efnis að Inter geti unnið ítölsku deildina, hvort sem krafta Ronaldos hins brasilíska nyti við eða ekki. Ronaldo hefur sem kunnugt er, verið frá keppni lengur en nokkur vill muna, en er nú kominn til Ítalíu eftir endurhæfingu heimafyrir.