Bjarki Gunnlaugsson, sem hætti hjá enska 1. deildar félaginu Preston vegna þrálátra meiðsla fyrir stuttu, ætlar að æfa með KR næstu vikur og sjá hvort hann kemst í leikhæft ástand. KR og Bjarki munu ekki skrifa undir samning fyrr en ljóst er hvort Bjarki getur spilað á ný en hann hefur löngum lýst því yfir að hann muni spila með vesturbæjarliðinu ef hann verði heill heilsu. Það yrði gífurlegur liðsstyrkur fyrir KR ef Bjarki næði sér á strik á ný en allir muna hvaða áhrif hann hafði á KR-liðið árið 1999.