[urlhttp://news.bbc.co.uk/sport1/hi/football/teams/c/chelsea/7053489.stm

Jæja nýjstu ummælin hans. Þessi maður er hreinlega laus við alla skynsemi. Fyrir nokkrum dögum vildi hann fara og sagðist hafa viljað fara síðan hann kom en núna er hann 100% Chelsea maður sem mun berjast fyrir félagið.
Sama hversu góður hann er í fótbolta þá er ég fegin að vera laus við menn eins og hann. Lið spila best þegar það eru ekki asnar að trufla eða vesen í búningsherbergjunum. Það er ástæðan fyrir því að Adriano og Riquelme eru í kuldanum hjá sínum liðum og ef ég væri Avram Grant þá myndi ég ekki nota hann til að sýna fordæmi.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann hegðar sér svona heimskulega. Munið þegar hann skoraði með hendinni en sagði daginn eftir þrátt fyrir að hann myndbönd sýndu fram á það þá neitaði hann að hafa skorað með hendi. Svo nokkrum dögum skiptir hann um skoðun og segist hafa gert það.

Í alvöru talað, hann þarf að ráða mann í vinnu sem sér eingöngu um það að hann tali ekki opinberlega.
“There's no such thing as stupid questions, just stupid people.”